top of page

Einföld & umhverfisvæn afhending með Pikkoló

Krónan & Pikkoló hefja samstarf.

  • Jun 18, 2025
  • 2 min read

Updated: 2 days ago

Einföld, ódýr & umhverfisvæn afhending.


Það er okkur sönn ánægja að tilkynna að núna getur þú valið að fá matarinnkaupin þín frá Krónunni afhent í þinni næstu Pikkoló stöð. Þú einfaldlega verslar í Snjallverslun Krónunnar, velur Pikkoló sem afhendingarstað og sækir þegar þér hentar.


Pikkoló and Krónan

Hvernig virkar þjónustan?


Samstarfið gefur viðskiptavinum Krónunnar, sem panta í gegnum Snjallverslun, möguleika á að sækja pantanir sínar í kældar afhendingarstöðvar Pikkoló sem eru opnar allan sólarhringinn.


Þú einfaldlega verslar fyrir klukkan 11:00 á daginn til þess að fá afhent samdægurs í þinni næstu Pikkoló stöð. Þú færð sms með aðgangskóða um leið og pöntunin þín er klár til afhendingar hjá Pikkoló og þú sækir þegar þér hentar.


Allar pantanir frá Krónunni eru komnar í Pikkoló stöðvarnar í síðasta lagi kl.16:00 á daginn svo þú getur klárað vinnudaginn í rólegheitum, sótt börnin á leikskóla eða skroppið í sund án þess að hafa áhyggjur af því að fara í búð á háannatíma eða vera heima til að taka á móti heimsendingu.




Mikil tækifæri

„Við sjáum mikil tækifæri í samstarfinu við Pikkoló, sem hefur gjörbreytt leiknum með því að auðvelda neytendum að nálgast mat- og dagvöru í nærumhverfi sínu með snjallari og umhverfisvænni hætti,“ segir Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar.

„Með þessu bætast við þjónustu okkar fjórar afhendingarstöðvar sem er frábært því við finnum að eftirspurnin eftir sveigjanleikanum sem í þessu felst er svo sannarlega til staðar. Það er okkar draumur að íbúar á landsbyggðinni fái einnig að njóta sömu þjónustu í framtíðinni og þar með fá betra aðgengi að matvöru á samkeppnishæfu verði.“


Að sögn Rögnu M. Guðmundsdóttur, annars stofnanda og framkvæmdastjóra Pikkoló, eru afhendingarstöðvar Pikkoló staðsettar með það í huga að auðvelda fólki að nálgast matarsendingar, svo sem við stærri vinnustaði og þétta íbúakjarna, og þannig spara fólki bílferð í matvörubúð á háannatíma.


„Krónan hefur verið í fararbroddi þegar kemur að notkun snjallra lausna til að þjónusta viðskiptavini sína enn betur. Kerfi Pikkoló eru hönnuð með það í huga að lágmarka óþarfa dreifingu matvara með því að samnýta sendingar á stöðvarnar. Frá því að við opnuðum fyrstu afhendingarstöðina okkar hefur Pikkoló sparað þúsundum notenda sporin og bjóðum við því viðskiptavini Krónunnar velkomna í hóp ánægðra samstarfsaðila Pikkoló‏“ segir Ragna.

Hefur þú prófað að velja Pikkoló sem afhendingarstað í Snjallverslun Krónunnar?



 
 
bottom of page