Brokkolísprettur eru nýja æðið í hlaupaheiminum.
- Jun 9
- 3 min read
Updated: 3 hours ago
Hlaupasumarið er hafið og þúsundir Íslendinga undirbúa sig nú fyrir hin ýmsu hlaup, hálfmaraþon og maraþon víðs vegar um landið. Á sama tíma hefur ný þróun verið að ryðja sér til rúms meðal úthaldsíþróttafólks um allan heim þar sem brokkolísprettur hafa notið síaukinna vinsælda.

Andri Guðmundsson, hlaupari og meðstjórnandi VAXA
Það sem margir vita ekki er að brokkolísprettur eru allt önnur vara en hefðbundið brokkolí. Þessar ungu plöntur innihalda margfalt meira af ákveðnum lífvirkum efnum en fullvaxið brokkolí og hafa vakið mikla athygli meðal hlaupara, hjólreiðafólks og annarra sem stunda úthaldsíþróttir.
„Mér finnst þetta gríðarlega spennandi þróun, ég fylgist mikið með því sem er að gerast í hlaupaheiminum erlendis og undanfarin misseri hafa brokkolísprettur verið mikið til umræðu meðal afreksíþróttafólks. Rannsóknir benda til þess að virku efnin í sprettunum geti hjálpað líkamanum að takast betur á við álag, stuðlað að hraðari endurheimt og haft áhrif á mjólkursýrumyndun við erfiðar æfingar. Það er auðvitað mjög áhugavert fyrir alla sem vilja hámarka árangur sinn. “ segir Andri Guðmundsson, hlaupari og meðstjórnandi VAXA.

Brokkolísprettur tilbúnar til afhendingar í kældri Pikkoló stöð.
Af hverju eru brokkolísprettur svona sérstakar?
Sprettur eru ungar plöntur sem eru uppskornar stuttu eftir að fyrstu blöðin hafa myndast. Þær eru því hlaðnar af vítamínum, steinefnum og andoxunarefnum.
Brokkolísprettur eru kraftmikil ofurfæða. Þær innihalda mjög hátt magn af glúkórafaníni, sem líkaminn umbreytir í súlfórafan. Súlfórfan er öflugt efni sem hefur verið rannsakað í áratugi og hefur sýnt fram á að draga úr vöðvaskemmdum, minnka bólgur og lækka mjólkursýru í líkamanum. Rannsóknir hafa sýnt að brokkolísprettur geta innihaldið margfalt meira af þessum efnum en fullvaxið brokkolí.
Uppbyggingin skiptir máli
Andri leggur áherslu á að brokkolísprettur séu ekki einhver skyndilausn sem virki kvöldið fyrir hlaup.
„Það eru til brokkolískot á markaðnum sem maður tekur í einum sopa fyrir keppni eða mjög erfiðar æfingar. Spretturnar eru meira hugsaðar sem hluti af heilbrigðu mataræði sem styður við æfingaálag og keppnir til lengri tíma. Ég borða 2 öskjur á dag sem tryggir mér stöðugan daglegan skammt af virku efnunum.“
Best er að borða spretturnar ferskar, til dæmis í salöt eða út í kaldan þeyting (smoothie), því mikill hiti eyðileggur virku ensímin.
Andri bendir á að elítuhlauparar og hjólreiðafólk um allan heim séu í vaxandi mæli að innleiða þessa ofurfæðu í sína rútínu til þess að ýta árangrinum upp á næsta stig – allt frá millivegalengdarhlaupurum í maraþonhlaupara, hjólara og þríþrautarfólk.
Frá ræktun á disk samdægurs
VAXA ræktar brokkolíspretturnar í Reykjavík með sjálfbærum hætti og hreinni íslenskri orku. Plönturnar eru ræktaðar án varnar- og eiturefna og fara beint úr ræktun til neytenda.
„Ferskleikinn skiptir miklu máli þegar kemur að sprettum. Við erum að framleiða þær hér heima og því þarf varan ekki að ferðast þúsundir kílómetra áður en hún lendir á diskinum hjá fólki,“ segir Andri.

Andri Guðmundsson, hlaupari og meðstjórnandi VAXA við Pikkoló - Háaleiti með brokkolísprettur frá VAXA..
VAXA og Pikkoló í samstarfi með hlaupasprettu áskrift:
Til þess að auðvelda hlaupurum lífið fyrir hlaupasumarið hafa VAXA og Pikkoló tekið höndum saman. Nú er hægt að skrá sig í sérstaka hlaupasprettu áskrift sem inniheldur vikulegan skammt af ferskum brokkolísprettum sem afhentar eru í þinni næstu Pikkoló stöð, en Pikkoló rekur fimm kældar afhendingarstöðvar víðsvegar á höfuðborgarsvæðinu.
Í áskriftinni fær fólk afhentan kassa með 14 öskjum af VAXA brokkolísprettum í hverri viku, sem hentar fullkomlega sem vikuskammtur, eða tvær öskjur á dag. Til að hvetja hlaupara til að prófa fyrirkomulagið er nú boðið upp á sérstakt kynningartilboð þar sem hægt er að fá sex vikna áskrift en greiða aðeins fyrir fimm vikur.
„Við vitum að margir eru núna að undirbúa sig fyrir hlaup sumarsins. Þetta er því kjörið tækifæri til að prófa brokkolíspretturnar sem hluta af æfingaprógramminu og sjá hvort þær henti þér,“ segir Andri.
Fullkomnar fyrir hlaupasumarið
Hvort sem markmiðið er að hlaupa fyrstu 10 kílómetrana, bæta tímann í hálfmaraþoni eða klára heilt maraþon, þá eru brokkolísprettur fullkomin viðbót við undirbúninginn.
Það er því kannski ekki að ástæðulausu að sífellt fleiri hlauparar séu farnir að tala um „hlaupasprettur“ þegar þeir ræða um nýjustu þróunina í næringu fyrir úthaldsíþróttir.
Hlaupasumarið er hafið og brokkolíspretturnar gætu reynst óvæntur liðsstyrkur á leiðinni að næsta markmiði. Kynntu þér málið og tryggðu þér hlaupaáskriftina af VAXA brokkolísprettum á pikkolo.is

