top of page

Einföld & umhverfisvæn afhending með Pikkoló

Japönsk jarðarber ræktuð á Íslandi – fyrst sinnar tegundar í Evrópu.

  • May 29
  • 2 min read

Updated: 2 days ago

Það er ekki á hverjum degi sem nýr kafli er skrifaður í sögu matvælaframleiðslu á Íslandi. En í Helguvík á Reykjanesi eru japanskir frumkvöðlar að gera nákvæmlega það.



ICHI-GO jarðarber eru einstök afurð sem sameinar japanska ræktunarhefð og hreina íslenska orku. Á bak við verkefnið standa japanskir sérfræðingar sem fluttu til Íslands með skýra sýn: að rækta fyrsta japanska jarðarberjayrkið í Evrópu. Samkvæmt fyrirtækinu iFarm Iceland er þetta í fyrsta sinn sem japönsk jarðarber eru ræktuð í Evrópu.


Af hverju Ísland?

Þegar flestir hugsa um jarðarberjarækt kemur Ísland líklega ekki fyrst upp í hugann. En fyrir japönsku ræktendurna var Ísland fullkominn staður. Hér er að finna hreint vatn, hreint loft og gnægð af endurnýjanlegri orku. Með því að nýta íslenska raforku geta þeir ræktað hágæða jarðarber allt árið um kring í stýrðu umhverfi þar sem hver einasta breyta er fínstillt fyrir bragð, áferð og gæði.



Japanskt handverk í hverju beri

Í Japan eru jarðarber ekki bara ávöxtur – þau eru oft talin lúxusvara og vinsæl gjöf við sérstök tilefni. Þar hefur ræktun jarðarberja verið þróuð af mikilli nákvæmni í áratugi og hundruð yrkja hafa verið ræktuð með það að markmiði að ná fullkomnu jafnvægi milli sætu, safaríkni og útlits.


ICHI-GO jarðarberin eru djúprauð, jafnlaga og einstaklega safarík. Þau eru ræktuð með japönskum aðferðum en knúin áfram af hreinni íslenskri orku. Útkoman er bragðupplifun sem er bæði fáguð og fersk – samruni tveggja ólíkra menningarheima sem eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á gæði fram yfir magn.



Frá plöntu til þín sama dag

Ólíkt flestum innfluttum jarðarberjum sem geta ferðast þúsundir kílómetra áður en þau lenda í verslunum eru ICHI-GO jarðarberin tínd og afhent fersk samdægurs.

Þetta þýðir að þau halda betur náttúrulegu bragði sínu, ilm og áferð. Ferskara verður það vart.


Gjöf sem vekur athygli

ICHI-GO jarðarber eru ekki aðeins fyrir þá sem elska góðan mat. Þau eru líka fullkomin gjöf þegar þú vilt færa einhverjum eitthvað óvenjulegt.


Hvort sem þú ert á leið í matarboð, afmæli eða vilt einfaldlega gera vel við fjölskylduna þá eru ICHI-GO jarðarberin upplifun sem slær alltaf í gegn og fólk man eftir.



Hefur þú smakkað ICHI-GO jarðarberin?



 
 
bottom of page