Lífræn uppskera beint úr Svarfaðardal – nú á markaðstorgi Pikkoló.
Við erum einstaklega glöð að bjóða Yrkju velkomna á markaðstorg Pikkoló.
Í Syðra Holti í Svarfaðardal, rétt utan Dalvíkur, er rekið fjölskyldubýli þar sem matur, ræktun og virðing fyrir náttúrunni fara saman. Þar ræktar fjölskyldan lífrænt vottað íslenskt grænmeti, safnar villtum jurtum og vinnur ýmsar afurðir úr uppskerunni – meðal annars handgert súrkál.

Fjölskyldan á bakvið Yrkju í Svarfaðardal á fallegum sumardegi.
Frá borginni í Svarfaðardal
Saga Yrkju hófst þegar stórfjölskyldan tók stóra ákvörðun: að flytja úr borginni norður í Svarfaðardal og hefja þar nýtt ævintýri.
Í dag er Syðra Holt orðið að fjölskyldureknu býli þar sem markmiðið er ekki fjöldaframleiðsla heldur að rækta í takt við náttúruna og árstíðirnar. Það þýðir líka að framboðið breytist eftir því hvað jörðin gefur hverju sinni.
Á býlinu er stunduð biodynamísk ræktun. Hún byggir á lífrænum grunni en lítur jafnframt á býlið sem eina lifandi heild þar sem jarðvegur, plöntur, dýr og fólk eru hluti af sama lífkerfi.
Grænmeti sem fylgir árstíðunum
Það er eitthvað sérstaklega fallegt við að elda úr því hráefni sem íslensk náttúra gefur okkur hverju sinni. Hjá Yrkju getur uppskeran meðal annars innihaldið kryddjurtir, grænkál, hvítkál, spergilkál, blaðlauk og ýmiss konar rótargrænmeti. Úr hluta uppskerunnar eru síðan unnar frekari afurðir.
Úrvalið þróast með sumrinu – frá léttara og grænna grænmeti yfir í meiri uppskeru rótargrænmetis þegar líður á tímabilið.
Á miðvikudögum er uppskeran handtínd, þvegin og pökkuð á býlinu áður en hún heldur áfram ferð sinni til viðskiptavina, sem geta nálgast hana í næstu Pikkoló stöð.

Hugmyndafræði sem passar vel við Pikkoló
Ein af ástæðunum fyrir því að við erum svona spennt fyrir því að fá Yrkju inn á markaðstorg Pikkoló er hversu vel hugmyndafræðin fellur að því sem við viljum byggja upp.
Við viljum gera fólki auðveldara að kaupa góðar íslenskar vörur beint frá framleiðendum, styðja við íslenska matvælaframleiðslu og stytta leiðina frá þeim sem framleiða matinn til þeirra sem borða hann.
Yrkja hefur meðal annars unnið með hugmyndafræði samfélagsstudds landbúnaðar (CSA), þar sem neytendur tengjast ræktandanum með beinum hætti og styðja við staðbundna framleiðslu. CSA byggist á því að neytendur gerast áskrifendur að uppskerunni og skuldbinda sig til að taka þátt í henni yfir ákveðið tímabil. Með þeim hætti byggjast upp sterkari tengsl milli framleiðenda og samfélagsins í kringum þá.
Þetta er framtíðarsýn sem við hjá Pikkoló getum svo sannarlega tekið undir.
Nú getur þú verslað frá Yrkju á Pikkoló
Með komu Yrkju á markaðstorg Pikkoló verður enn einfaldara að uppgötva og versla íslenskar afurðir frá fólkinu sem ræktar þær og framleiðir.
Fyrir okkur snýst Pikkoló nefnilega ekki bara um að koma vörum frá A til B.
Það snýst um að stytta bilið milli íslenskra framleiðenda og heimila, gera staðbundna framleiðslu aðgengilegri og skapa einfaldari leið fyrir okkur öll til að velja íslenskt.
Við bjóðum Yrkju hjartanlega velkomna í Pikkoló-fjölskylduna 🌱

Panta þarf fyrir miðnætti á þriðjudegi – afhent í þinni næstu Pikkoló stöð á föstudegi.
Þú færð sms um leið og pöntunin þín er klár til afhendingar og þú sækir þegar þér hentar.


